Könnunin Okkar framtíð veitir okkur innsýn í drauma, markmið og væntingar barna og ungmenna á Íslandi.
Við báðum alla grunnskóla landsins að taka þátt og veita öllum sínum nemendum í 1.-10. bekk tækifæri til að tjá sig um framtíð sína og segja frá því sem skiptir þau máli.
Við vildum heyra frá öllum börnum og ungmennum – því hugmyndir þeirra, vonir og áskoranir eru lykillinn að því að skapa betri framtíð fyrir okkur öll.
Könnuninn lauk í lok skólaárs, 2026 og er verið að vinna úr niðurstöðunum.
Hvers vegna?
Markmið könnunarinnar var að:
Fá betri mynd af því hvað börn og ungmenni á Íslandi langar að verða þegar þau verða stór.
Skoða hvernig samfélagsmiðlar og aðrir þættir hafa mögulega áhrif á vonir og væntingar þeirra.
Koma auga á það sem skiptir unga fólkið mestu máli.
Skoða hvort staðsetning og bakgrunnur hafi áhrif á framtíðardrauma.
Finna út hvaða námsgreinar vekja áhuga og hvernig þær tengjast framtíðaráformum.
Hjálpa ungu fólki að sjá hvaða tækifæri eru í boði.
Athuga hvort draumastörf unga fólksins passi við það sem íslenskt atvinnulíf þarf.
Áhrif og ávinningur
Niðurstöðurnar eiga að hjálpa okkur að skilja betur hvað unga fólkið vill gera í framtíðinni. Þær munu nýtast við stefnumótun verkefnisins Stækkaðu framtíðina og stjórnvöldum í stefnumótun. Einnig aðstoðar hann vinnumarkaðinn við að átta sig betur á því hvaða störf verða eftirsótt í framtíðinni.
Opinber kynning
Niðurstöðurnar verða kynntar opinberlega ásamt skemmtilegri sýningu á teikningum, textum og myndböndum frá nemendum.