Stækkaðu framtíðina er að breskri fyrirmynd, og er unnið í nánu samstarfi við Breska sendiráðið á Íslandi og „Inspiring the future“ sem er fyrirmynd verkefnisins í Bretlandi.
Nick Chambers, forsprakki verkefnisins Inspiring the future í Bretlandi, heimsótti Ísland dagana 17.-21.mars á vegum breska sendiráðsins. Hann átti hér góða daga þar sem hann fundaði ásamt breska sendiherranum Bryony Mathew og Rögnu Skinner verkefnastjóra Stækkaðu framtíðina með fjölda hagsmunaaðila í íslenska menntakerfinu og stjórnmálum með það fyrir augum að styðja við og styrkja þróun verkefnisins hér á landi. Einnig ræddu þau þá fjölmörgu möguleika sem verkefnið hefur að bjóða upp á í framtíðinni t.d. til rannsókna en það byggir á 12 ára reynslu og rannsóknum í Bretlandi.
Þau Nick, Bryony og Ragna kíktu einnig í heimsókn í Landakotsskóla ásamt vísindamiðlaranum snjalla Stjörnu-Sævari sem heillaði börn í 5. Bekk með frásögnum af störfum sínum ásamt því að veita þeim innsýn í vitneskju sína um allt milli himins og jarðar. Einnig kynnti breska sendiráðið barnabók Bryony Mathew sem fjallar um spennandi, ólík og fjölbreytt störf í framtíðinni með sérstaka áherslu á inngildingu og fjölbreytileika. Bókin veitir krökkunum m.a. innblástur með því að segja þeim að þau hafi næga tíma til að læra nýja hluti, rétt eins og fullorðið fólk. Ef þeim finnist eitthvað of erfitt eða ef þeim gangi ekki nógu vel þá sé gott að minna sig á orðin ENN ÞÁ, og segja: „Ég get þetta ekki….ENN ÞÁ“, eða „Ég skil þetta ekki…ENN ÞÁ“.
Nick, Bryony og Rögnu var vel tekið í Mennta- og barnamálaráðuneytinu, á Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar og hjá Kennarasambandi Íslands sem allt eru samstarfsaðilar í verkefninu. Stefnt er að veglegri opnun þess í haust þegar skólarnir hefjast aftur eftir sumarfrí.
https://www.hi.is/frettir/forsprakki_staekkadu_framtidina_i_heimsokn_i_hi